Niðurstöður skýrsluhalds

Í forgrunni er Tumi frá Káranesi í Kjós, undan Garpi 20044 og Hild1 1222. Yfir hann gægist Andi frá …
Í forgrunni er Tumi frá Káranesi í Kjós, undan Garpi 20044 og Hild1 1222. Yfir hann gægist Andi frá Brúnastöðum I í Flóa, undan Ægi 22010 og Krukku 1237.
Mynd frá Nautastöðinni á Hesti.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar yfir síðustu 12 mánuði, að enduðum ágúst, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað síðdegis hinn 12. september.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 442 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði að þessu sinni til 115 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.461,2 árskúa á búunum 442 var 6.541 kg. eða 6.535 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu. Meðalfjöldi árskúa á búunum 442 var 55,3.

Nythæstu fimm búin voru nú þau sömu og fyrir mánuði síðan, en röðin örlítið breytt. Mest meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var líkt og undanfarið á búi Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, en meðalnytin þar reiknaðist að þessu sinni 9.181 kg. Annað á listanum eins og við lok júlí var bú Brynjólfs og Piu – Hellisbúsins, í Kolsholti 1 þar sem meðalnyt árskúnna reyndist 8.795 kg. Þriðja var bú Hermanns og Sigrúnar á Tannstaðabakka við Hrútafjörð þar sem meðalafurðir árskúnna voru 8.711 kg. Fjórða var bú Helgu Bjargar Helgadóttur á Syðri-Hömrum 3 í Ásahreppi, Rang. þar sem meðalárskýrin skilaði 8.638 kg. að jafnaði síðustu 12 mánuðina. Fimmta reyndist vera bú Garðars Guðmundssonar í Hólmi í Landeyjum þar sem hver árskýr mjólkaði að meðaltali 8.546 kg.

Nythæst á síðustu 12 mánuðum, eins og síðustu mánuði, var Stör 1132 (f. Dynur 16002) í Kolsholti 1 í Flóa en nyt hennar var 15.889 kg. á tímabilinu. Næst henni í röðinni var kýr 1049 (f. Græðir 18004) í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum sem mjólkaði 15.274 kg. síðustu 12 mánuði. Þriðja í röðinni var Rauðhetta 850 á Tannstaðabakka við Hrútafjörð sem skilaði 14.717. kg. mjólkur á tímabilinu. Fjórða á listanum, á sama stað og síðustu mánuði, var Klauf 2487 (f. Strákur 10011) í Lambhaga á Rangárvöllum sem mjólkaði 14.249 kg. á uppgjörstímabilinu. Fimmta reyndist vera Prikla 1228 (f. Flýtir 17016) í Hvammi í Ölfusi sem mjólkaði 14.213 kg. á síðustu 12 mánuðum.

Alls náðu 189 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir síðasta mánuð hafði verið skilað frá síðdegis þann 12. september að mjólka 11.000 kg. eða meira síðustu 12 mánuði. Af þeim hópi mjólkuðu 57 kýr 12.000 kg. eða meira og 16 af þeim skiluðu afurðum yfir 13.000 kg. á umræddu tímabili. Af þeim mjólkuðu síðan 6 kýr yfir 14.000 kg. og enn fremur náðu tvær þeirra síðastnefndu að skila afurðum yfir 15.000 kg. sem hefur verið sjaldgæft að sjá. Rétt er að geta þess að sú nythæsta á stutt eftir í að mjólka 16.000 kg. á 12 mánaða tímabili.

Meðalfjöldi kúa á þeim 115 hreinu kjötframleiðslubúum sem uppgjörið nær yfir reiknaðist 30,9 við lok ágúst en árskýrnar á þeim búum voru á þeim tíma 25,2 að meðaltali. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum var 6.692,9 kg. á undanförnum 12 mánuðum.

Meðalfallþungi 9.472 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búunum sem uppgjörið nær yfir, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 257,7 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 733,9 dagar.

Ef til vill er rétt að geta þess hér að skjalið sem geymir upplýsingar um fjölda dætra undan þeim nautum sem eiga fimm eða fleiri dætur á lista kúa sem skiluðu meiri en 9000 kg. nyt, er ekki uppfært í hverjum mánuði.

Sjá nánar:

rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2024