Niðurstöður skýrslnanna í nautgriparæktinni í júní 2013

Niðurstöður skýrslnanna í nautgriparæktinni við lok júní hafa verið reiknaðar og birtar hér á vef okkar. Þegar niðurstöðurnar urðu til um miðnætti síðastliðna nótt hafði verið skilað skýrslum frá 92% af þeim 583 búum sem voru skráð í skýrsluhaldið. Reiknuð meðalnyt 20.980,5 árskúa var 5.650 kg sem er 5 kg lækkun frá síðasta uppgjöri. Meðalfjöldi árskúa á búum þeim sem skýrslum hafði verið skilað frá var 39,0.

Hæsta meðalnytin á tímabilinu var á búi Eggerts Pálssonar á Kirkjulæk í Fljótshlíð, 7.810 kg eftir árskú og er það sama búið og mest meðalnyt var á við síðasta uppgjör. Næsta bú í röðinni var bú Arnfríðar og Jóns Viðars í Dalbæ I í Hrunamannahreppi en þar reiknaðist meðalnytin 7.703 kg á árskú. Þriðja búið á listanum var bú Helga Bjarna Steinssonar á Syðri-Bægisá í Öxnadal en þar var meðalnytin 7.629 kg á árskúna. Fjórða búið var bú Jóns og Hrefnu á Hóli í Sæmundarhlíð í Skagafirði en þar var nyt meðalkýrinnar 7.619 kg og fimmta búið var bú Guðmundar og Svanborgar í Miðdal í Kjós en þar reiknaðist nytin 7.607 kg á árskú. Bú nr. 2-5 á listanum eru hin sömu og við seinasta uppgjör, röðin innbyrðis hefur hins vegar breyst. Á 24 búum var reiknuð meðalnyt á síðustu 12 mánuðum hærri en 7.000 kg eftir árskú.

Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var Urður nr. 1229 á Hvanneyri í Andakíl í Borgarfirði og mjólkaði hún 12.225 kg sl. 12 mánuði. Hún var einnig fyrst í röðinni við seinasta uppgjör. Önnur í röðinni núna var kýrin Treyja nr. 387 í Hrepphólum í Hrunamannahreppi. Nyt hennar á sl. 12 mánuðum var 11.833 kg. Treyja var í þriðja sæti á þessum lista fyrir mánuði síðan. Þriðja nythæsta kýrin var Skutla nr. 1069 í Skáldabúðum í Gnúpverjahreppi og mjólkaði hún 11.370 kg á síðustu 12 mánuðum og hafði hækkað sig um eitt sæti. Alls náðu 6 kýr að mjólka yfir 11.000 kg á umræddu tímabili, einni færri en við seinasta uppgjör. Af þessum 6 komst ein yfir 12.000 kg á tímabilinu.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhaldsins í nautgriparæktinni

/sk