Niðurstöður skýrslna nautgriparæktarinnar í apríl 2013

Hæsta meðalnyt á tímabilinu var á búi Eggerts Pálssonar á Kirkjulæk í Fljótshlíð, 7.688 kg á árskú en það bú var í fjórða sæti í síðasta uppgjöri. Næsta bú í röðinni var bú Guðmundar og Svanborgar í Miðdal í Kjós en þar reiknaðist nytin 7.683 kg á árskú. Á síðasta uppgjöri var það í efsta sæti. Þriðja í röðinni í uppgjörinu nú í apríl var sama búið og við seinasta uppgjör, bú Arnfríðar og Jóns Viðars í Dalbæ í Hrunamannahreppi með 7.635 kg afurðir á árskú síðustu 12 mánuði. Fjórða í röðinni var bú Jóns og Hrefnu á Hóli í Sæmundarhlíð í Skagafirði og í fimmta sæti var bú Helga Bjarna Steinssonar á Syðri-Bægisá í Öxnadal. Á 25 búum var reiknuð meðalnyt á síðustu 12 mánuðum hærri en 7.000 kg eftir árskú.

Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var nr. 474 á Eystra-Seljalandi undir Eyjafjöllum, sú sama og við seinasta uppgjör. Nyt hennar var 13.759 kg á sl. 12 mánuðum. Önnur í röðinni, einnig hin sama og við síðasta uppgjör, var Urður nr. 1229 á Hvanneyri í Andakíl í Borgarfirði sem mjólkaði 12.576 kg á tímabilinu. Hin þriðja var Skutla nr. 1069 í Skáldabúðum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi með 12.137 kg á síðustu 12 mánuðum. Tvær efstu kýrnar eru hinar sömu og fyrir mánuði síðan og hin þriðja hefur hækkað sig um eitt sæti. Alls náðu 7 kýr að mjólka yfir 11.000 kg á umræddu tímabili í stað 11 við seinasta uppgjör. Af þessum 7 mjólkaði ein yfir 13.000 kg og nyt tveggja annarra, þeirra sem þegar hafa verið nefndar, var yfir 12.000 kg á tímabilinu.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds í nautgriparækt

/sk