Niðurstöður afurðaskýrslnanna í mjólkurframleiðslunni nú í mars

Sonur frá Syðri-Bægisá í Hörgársveit
Sonur frá Syðri-Bægisá í Hörgársveit

Niðurstöður afurðaskýrslnanna í mjólkurframleiðslunni í mars hafa verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til nokkru eftir hádegi þann 11. apríl, höfðu skýrslur borist frá 555 búum. Reiknuð meðalnyt 25.627,6 árskýr á þessum búum, var 6.283 kg á síðustu 12 mánuðum. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 46,2. Rétt er að hafa í huga að ekki er um að ræða skil frá öllum búum sem eru skráð til þátttöku í skýrsluhaldinu og taka mið af því þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar.

Búið þar sem meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum er vel kunnugt í efsta sæti þessa lista, hið sama og við höfum séð oft áður, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr þar mjólkaði að jafnaði 8.810 kg. síðustu 12 mánuði. Annað búið í röðinni er heldur ekki ókunnuglegt hér, bú Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal þar sem meðalkýrin mjólkaði 8.509 kg. á tímabilinu. Þriðja búið á listanum er hið sama og fyrir mánuði, bú Gunnbjarnar ehf. í Skáldabúðum í hinum gamla Gnúpverjahreppi en þar reiknaðist meðalnyt árskúa 8.373 kg. Hið fjórða á listanum að þessu sinni, líkt og seinast, var Hvanneyrarbúið ehf. á Hvanneyri í Andakíl í Borgarfirði, þar sem hver árskýr skilaði að meðaltali 8.280 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fimmta búið að þessu sinni var bú Jakobs Smára Pálmasonar í Garðakoti í Hjaltadal í Skagafirði en meðalnyt árskúnna þar var 8.251 kg. á tímabilinu.

Nythæsta kýrin við uppgjörið nú var hin sama og síðast, Sjöa 777 (f. Roði 11051) á Kúskerpi í Blönduhlíð í Skagafirði sem mjólkaði 14.398 kg undanfarna 12 mánuði. Önnur í röðinni var Pera 484 (f. Tandri 11068) á Grund í Svarfaðardal en hún skilaði 13.663 kg. á síðustu 12 mánuðum. Þriðja kýrin var Nína 676 (f. Ófeigur 02016) á Brúsastöðum í Vatnsdal en nyt hennar reiknaðist 13.339 kg á tímabilinu.  

Alls náðu 89 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir mars hafði verið skilað frá nokkru eftir hádegið þ. 11. apríl, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 13 yfir 12.000 kg. nyt á tímabilinu og þar af þrjár sem komust yfir 13.000 kg og ein þeirra síðastnefndu skilaði meiru en 14.000 kg síðustu 12 mánuðina.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk