Niðurstöður afurðaskýrslna nautgriparæktarinnar fyrir nýliðinn júní

Jöfur frá Káranesi í Kjós undan Skálda 19036 og Stöku 1006. Mynd: Nautastöðin Hesti.
Jöfur frá Káranesi í Kjós undan Skálda 19036 og Stöku 1006. Mynd: Nautastöðin Hesti.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar yfir síðustu 12 mánuði, þegar júní hefur runnið sitt skeið, hafa verið birtar á vef okkar. Niðurstöðurnar byggja á þeim skýrslum sem hafði verið skilað undir hádegi þann 12. júlí.
Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar hafði verið skilað mjólkurskýrslum frá 448 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði að þessu sinni til 118 búa þar sem framleitt var nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.484,3 árskúa á búunum 448 var 6.525 kg. eða 6.565 kg. OLM (af orkuleiðréttri mjólk) á uppgjörstímabilinu. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum 448 búum var 54,7.

Mest meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var líkt og undanfarið á búi Eyvindar og Aðalbjargar í Stóru-Mörk 1 undir Eyjafjöllum, en hún reiknaðist að þessu sinni 9.046 kg. Annað á listanum, eins og undanfarna mánuði var bú Garðars Guðmundssonar í Hólmi í Landeyjum þar sem hver árskýr mjólkaði að jafnaði 8.644 kg. mjólkur á tímabilinu. Þriðja að þessu sinni var bú Brynjólfs og Piu – Hellisbúsins, í Kolsholti 1 þar sem meðalnyt árskúnna var 8.616 kg. á umræddu tímabili. Fjórða var bú Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal þar sem meðalnyt árskúnna var 8.515 kg. síðustu 12 mánuði. Fimmta að þessu sinni varð bú Helgu Bjargar Helgadóttur á Syðri-Hömrum 3 þar sem meðalárskýrin skilaði 8.449 kg. á síðustu 12 mánuðum.

Nythæst á síðustu 12 mánuðum var Stör 1132 (f. Dynur 16002) í Kolsholti 1 í Flóa en nyt hennar var 14.664 kg. á umræddum tíma. Næst henni í röðinni var Prikla 1228 (f. Flýtir 17016) í Hvammi í Ölfusi sem mjólkaði 14.500 kg. á tímabilinu. Þriðja í röðinni varð kýr nr. 988 (f. Strákur 10011) á Núpi á Berufjarðarströnd sem mjólkaði 14.339 kg. Fjórða á listanum var Klauf 2487 (f. Strákur 10011) í Lambhaga á Rangárvöllum sem mjólkaði 13.985 kg. á umræddum tíma. Fimmta var kýr nr. 2286 (f. Skalli 11023) í Birtingaholti 1 í Hrunamannahreppi sem mjólkaði á síðustu 12 mánuðum 13.917 kg.

Alls náðu 160 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir síðasta mánuð hafði verið skilað frá undir hádegi þann 12. júlí að mjólka 11.000 kg. eða meira síðustu 12 mánuði. Af þeim hópi mjólkuðu 46 kýr 12.000 kg. eða meira og 15 af þeim skiluðu afurðum yfir 13.000 kg. á umræddu tímabili. Af þeim mjólkuðu þrjár yfir 14.000 kg. eins og fram kemur hér á undan.

Meðalfjöldi kúa á þeim 118 hreinu kjötframleiðslubúum sem uppgjörið nær yfir reiknaðist 29,8 við lok júní en árskýrnar á þeim búum voru á þeim tíma 25,1 að jafnaði. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum reyndist 6.830,7 kg. á undanförnum 12 mánuðum.

Meðalfallþungi 9.552 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búunum sem uppgjörið nær yfir, hvort sem um ræðir bú þar sem stunduð var kjötframleiðsla eða mjólkurframleiðsla, eða blanda af hvoru tveggja, undanfarna 12 mánuði, var 257,5 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 738,1 dagur.

Skjalið sem geymir upplýsingar um fjölda dætra undan þeim nautum sem eiga fimm eða fleiri dætur á lista kúa sem skiluðu meiri en 9000 kg. nyt fylgir að þessu sinni en það er ekki uppfært í hverjum mánuði eins og áður hefur verið bent á.

Sjá nánar:

rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2023