Niðurstöður afkvæmadóms nauta fæddra 2008

Niðurstöður afkvæmadóms nauta sem fædd voru árið 2008 hafa verið birtar og eru aðgengilegar á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins. Að venju er þar að finna tölulegar niðurstöður úr kúaskoðun á dætrum þessara nauta, efnahlutföll, frumutölu, niðurstöður mjaltaathugunar, kynbótamat og lýsingu á dætrahópunum. Dómi þessa nautaárgangs er lokið og afar ólíklegt að fleiri naut úr árganginum verði nýtt sem reynd naut og sæði úr þeim dreift. Á þessari stundu er aðeins eftir að velja besta naut árgangsins.

Sjá nánar:

Afkvæmadómar nauta

/gj