Námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt

Fyrirhugað er að halda a.m.k. þrjú námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt um miðjan júní:

Þau fara fram á Stóra Ármóti, Hvanneyri og Akureyri.

Námskeiðin hefjast kl. 10.00 fyrir hádegi og þeim lýkur kl. 18.00.

Skráning: Þeir sem óska eftir að sækja fyrirhugað námskeið eru vinsamlegast beðnir að skrá þátttöku hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins fyrir 30. maí. Unnt er að skrá þátttöku í síma 516-5000 eða með tölvupósti til bella@rml.is.

Nánari upplýsingar um staðsetningar og tímasetningar verða í Bændablaðinu sem kemur út fimmtudaginn 6. júní og hér á heimasíðunni.

bpb/okg