Námskeið fyrir nýja kynbótadómara í hrossarækt

Námskeið fyrir nýja kynbótadómara í hrossarækt verður haldið á vegum Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) í febrúar. Af því tilefni auglýsum við eftir áhugasömum einstaklingum.

Þær kröfur sem gerðar eru um menntun eru BS-gráða í Búvísindum, Hestafræði eða Reiðmennsku og Reiðkennslu og að umsækjendur hafi lokið áfanga í kynbótadómum.

Áhugasamir hafi samband við Þorvald Kristjánsson (thk@rml.is) fyrir 25. janúar nk.

/okg