Málþing um kynbótakerfið í hrossarækt: Hvernig náum við meiri árangri?

Fagráð í hrossarækt og Landbúnaðarháskóli Íslands boða til málþings um kynbótakerfið í hrossarækt föstudaginn 6. september kl. 13:00-18:00 í Ásgarði á Hvanneyri.

Dagskrá þingsins samanstendur af nokkrum inngangserindum um ýmsar hliðar kerfisins en síðan taka við opnar umræður og hópavinna með þátttöku málþingsgesta.

  • Þingforseti - Ágúst Sigurðsson LhbÍ.
  • Inngangur - Guðlaugur V. Antonsson RML.
  • Dómkerfið - Ræktunarmarkmið ofl.: Víkingur Gunnarsson Hólum í Hjaltadal.
  • Framkvæmd dóma - Menntun dómara o.fl.: Þorvaldur Kristjánsson LbhÍ.
  • Hlutverk kynbótadóma - Kynbótamat o.fl.: Elsa Albertsdóttir LbhÍ.

Allt áhugafólk um kynbætur íslenska hestsins hvatt til að mæta og taka þátt.

Þátttökugjald: 1000 kr - Greitt á staðnum.

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrirfram hjá Endurmenntun LbhÍ - www.lbhi.is/namskeid eða í síma 433-5000 og netfangið endurmenntun@lbhi.is - þar á að koma fram fullt nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang.

Hægt er að kaupa hádegisverð í matstofu LbhÍ áður en þingið hefst en nauðsynlegt er að taka það fram við skráningu ef óskað er eftir slíku. Nánari upplýsingar munu birtast á heimasíðu LbhÍ.

ga/okg