Lokaskráning föstudaginn 22. maí!

Við viljum minna á að lokaskráningardagur á allar vorsýningar á suðvesturhorni landsins er föstudaginn 22. maí næstkomandi. Sýningarnar sem um ræðir eru á Gaddstaðaflötum, Miðfossum og í Víðidal. Hætt er við að mikið álag skapist þann dag á skráningarkerfið, þannig það er um að gera að drífa í að skrá sem fyrst. Síðasti skráningardagur fyrir sýninguna á Fljótsdalshéraði er einnig þennan dag.