Lífland lækkar verð á kjarnfóðri um 4-5%

Ástæða verðbreytinga er lækkun á heimsmarkaðsverði hráefna til fóðurgerðar og styrking íslensku krónunnar að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Stutt er síðan Lífland lækkaði kjarnfóðurverð síðast en það var 25. mars sl. Fram að því hafði verð haldist óbreytt frá byrjun desembermánaðar.

Verðlista kjarnfóðurs má sjá á heimasíðu Líflands, www.lifland.is.