Lena Johanna Reiher er komin til starfa

Lena Johanna Reiher ráðunautur RML hefur nú hafið störf eftir fæðingarorlof. Hún mun starfa á starfsstöðinni á Hvanneyri og til að byrja með verður hún í 50% starfi. Lena mun starfa í faghópi ráðunauta og mun hún að mestu leyti sinna verkefnum sem tengjast fóðuráætlanagerð. Viðvera Lenu á skrifstofu verður frá klukkan 8.30 - 12.30 alla virka daga í desember.

Á Hvanneyri starfa auk Lenu:
Árni B. Bragason, sauðfjárræktarráðunautur
Berglind Ósk Óðinsdóttir, starfsmannastjóri og ráðunautur í fóðrun
Borgar Páll Bragason, fagstjóri á sviði nytjaplantna
Eyjólfur Ingvi Bjarnason, sauðfjárræktarráðunautur
Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur
Helga Halldórsdóttir, verkefnisstjóri þróunar- og samskipta
Karvel L. Karvelsson, framkvæmdastjóri
Lárus G. Birgisson, sauðfjárræktarráðunautur
Oddný Kristín Guðmundsdóttir, skrifstofumaður
Unnsteinn Snorri Snorrason, bútækniráðunautur

/okg