Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Móttaka á pöntunum á lambadómum er nú hafin. Best er að bændur panti sjálfir í gegnum heimasíðu RML (sjá tengil á forsíðu) en einnig er hægt að hringja í 516-5000 og láta taka pöntunina niður.
Eindregið er óskað eftir því að bændur panti fyrir 16. ágúst svo skipuleggja megi þessa vinnu með sem hagkvæmustum hætti. Ef ekki liggur fyrir í hvaða viku á að skoða lömbin þegar nálgast miðjan ágúst er vakin athygli á því að nú er hægt að panta lambaskoðun án þess að panta ákveðna viku. Þeir bændur og skipuleggjendur verða þá í samráði með tímasetningu í framhaldinu og skoða hvaða möguleikar eru eftir í stöðunni.
Pantanir sem berast fyrir 16. ágúst njóta forgangs við niðurröðun og þeir sem panta síðar geta lent í verri stöðu með að fá lambaskoðun á þeim tíma sem þeir óska helst eftir. Síðasti dagur sem hægt er að panta vinnu við lambadóma er föstudagurinn 15. október. Pantanir vegna vinnu við lambadóma dagana 11.–15. október þurfa að berast í allra síðasta lagi fimmtudaginn 7. október og verður pöntunarforminu lokað í lok þess dags. Semja þarf sérstaklega við skipuleggjendur lambadóma á hverju svæði um vinnu sem óhjákvæmilegt er að hafa utan tímabilsins 6. september til 15. október. Mikilvægt að fá þær óskir eins tímalega og kostur er.
Sjá nánar:
Panta lambadóma
/okg