Kynningarfundur um kyngreint sæði

Þriðjudaginn 14. janúar n.k. verður haldinn kynningarfundur um framkvæmd tilraunar með kyngreint nautasæði. Á fundinum verður farið yfir helstu atriði varðandi framkvæmd tilraunarinnar og þau atriði sem snúa að bændum varðandi val gripa og sæðingar þannig að árangur verði sem bestur.

Á fundinum verður jafnframt farið yfir þau naut sem kyngreint var sæði úr og verða í tilrauninni.

Framsögumenn verða Höskuldur Jensson, dýralæknir Nautastöðvarinnar, og Guðmundur Jóhannesson, RML. Að erindum loknum verða fyrirspurnir og umræður.

Fundurinn verður á Teams og hefst kl. 13.00.

Hér fyrir neðan er hlekkur á fundinn.

Kynningarfundur um kyngreint sæði