Kynning á landbúnaði á Handverkshátíð

Á Handverkshátíðinni á Hrafnagili sem hófst í gær fer fram kynning og fræðsla um landbúnað í Eyjafirði. Það eru Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, Búnaðarsamband Eyjafjarðar, Félag ungra bænda og búgreinafélög héraðsins í hrossa, kúa og sauðfjárrækt, sem standa að þessu framtaki.

Á myndinni eru Berglind Ósk Óðinsdóttir, Birgir Arason og Ólafur Geir Vagnsson. 

bpb/okg