Kynbótasýningar í júlí og ágúst

Nú hefur verið opnað fyrir skráningar á kynbótasýningar það sem eftir lifir sumars. Þar er um að ræða eftirtaldar sýningar og daga með fyrirvara um breytingar háðar þátttöku: 

  • Selfoss 22.7 - 26.7: Síðasti skráningar- og greiðsludagur 15. júlí.
  • Miðfossar 12.8 - 16.8: Síðasti skráningar- og greiðsludagur 6. ágúst.
  • Hvammstangi 12.8 - 16.8: Síðasti skráningar- og greiðsludagur 6. ágúst.
  • Hella 12.8 - 23.8: Síðasti skráningar- og greiðsludagur 6. ágúst.
  • Skagafjörður 19.8 - 23.8: Síðasti skráningar- og greiðsludagur 12. ágúst.
  • Dalvík 19.8 - 23.8: Síðasti skráningar- og greiðsludagur 12. ágúst. 

Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“.

Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 13.500,- kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag áður en kynbótasýningin hefst í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið rml@rml.is. Endurgreiddar eru kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn framvísun læknisvottorðs.

Allar nánari upplýsingar í síma Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins 516-5000 eða á heimasíðunni www.rml.is þar sem t.d. eru leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið rml@rml.is.

Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Úr stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir blóðsýni og spattmynd í WorldFeng svo hægt sé að skrá þá á sýningu.

Sjá nánar:

Skrá hross á kynbótasýningu

Kynbótasýningar

ga/hh