Kynbótasýningar á Sauðárkróki og Dalvík

Ljósmyndari: Helga Thoroddsen
Ljósmyndari: Helga Thoroddsen

Kynbótasýningar fara fram á Sauðárkróki og Dalvík í vikunni 19. til 23. ágúst næstkomandi. Sýningardagar verða ákveðnir nánar þegar þáttaka liggur fyrir.
Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“.

Síðasti skráningar- og greiðsludagur er miðvikudagur 14. ágúst.

Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 13.500,- kr.
Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag áður en sýningin hefst í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið rml@rml.is.
Endurgreitt er kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm.
Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.
Allar nánari upplýsingar í síma Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins 516-5000 eða á heimasíðu RML þar sem t.d. eru leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Þá er valinn flipinn Kynbótasýningar til hægri á forsíðunni.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið rml@rml.is.
Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra. Úr stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir blóðsýni og spattmynd í WorldFeng svo hægt sé að skrá þá á sýningu.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.