Kynbótasýningar á Miðfossum og Gaddstaðaflötum 2.-13. júní

Nú styttist óðum í síðustu tvær kynbótasýningarnar sem haldnar verða sunnan- og vestanlands fyrir landsmót.

Kynbótasýningarnar fara fram dagana 2. til 13. júní bæði á Miðfossum í Borgarfirði og á Gaddstaðaflötum við Hellu. Síðasti skráningar- og greiðsludagur fyrir báðar þessar sýningar er næstkomandi sunnudagur 25. maí og vakin er sérstök athygli á því að skráningarfresturinn er sá sami fyrir báðar vikur sýninganna. Þegar þetta er ritað er búið að skrá 74 hross á fyrri vikuna á Gaddstaðaflötum (pláss fyrir 204 hross) og 91 á seinni vikuna (pláss fyrir 180 hross). Á Miðfossum er staðan sú að búið er að skrá 20 hross á fyrri vikuna (pláss fyrir 144) og 33 á seinni vikuna (pláss fyrir 180 hross). Þeir sem vilja vera öruggir með pláss ættu því að skrá hross sín sem fyrst. Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að skrá hross til sýningar hér á heimasíðu RML í gegnum flýtihnapp á forsíðunni. 

Verð fyrir fullnaðardóm er 20.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 15.500,- kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu sem er 30. maí og á það við um báðar vikurnar, enda sama sýning þó svo mönnum gefist kostur á að skrá á báðar vikurnar. Forföll er hægt að tilkynna í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lr@rml.is. Endurgreiddar eru kr. 13.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 10.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn framvísun læknisvottorðs. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí.

Allar nánari upplýsingar í síma Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins 516-5000 eða á heimasíðunni www.rml.is þar er t.d. að finna leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.

Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Fyrir hvern stóðhest fimm vetra og eldri þurfa niðurstöður úr blóðsýni og röntgenmynd af hæklum að liggja fyrir í WorldFeng. Ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu. Stóðhestum sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði verður vísað frá sýningu strax hjá mælingarmanni.

hes/okg