Kynbótasýningar á Hellu, Borgarfirði og Melgerðismelum.

Nú eru báðar vikurnar á kynbótasýninguna á Gaddstaðaflötum við Hellu orðnar fullar og kominn biðlisti í WorldFeng/SportFeng þar sem hægt er að skrá hross sem komust ekki að.  Ekki verður bætt við dögum á sýninguna á Gaddstaðaflötum en hross á biðlista hafa forgang að komast að ef pláss losna.  Mikilvægt er að menn greiði ekki sýningargjöld fyrir hross á biðlista (haka við "greiða með millifærslu").  Ef hrossin komast að verður haft samband og mönnum gefst þá kostur á að greiða fyrir hrossin.  

Jafnframt viljum við benda á að enn eru laus pláss á sýningar í Borgarfirði og Melgerðismelum.

LR/AGG