Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Kynbótasýning fer fram á félagssvæði Fáks í Víðidal dagana 13. til 17. maí ef næg þátttaka næst. Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er Skrá hross á kynbótasýningu.
Síðasti skráningar- og greiðsludagur er nk. föstudag 3. maí. Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 13.500,- kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is. Endurgreiddar eru kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn framvísun læknisvottorðs.
Allar nánari upplýsingar í síma Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins 516-5000 eða hér á heimasíðunni þar sem t.d. eru leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin lr@rml.is og rml@rml.is.
Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Stóðhestar fimm vetra og eldri þurfa að hafa fyrirliggjandi í WorldFeng blóðsýni og röntgenmynd af hæklum. Ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu.
hes/okg