Kynbótasýning á Selfossi flutt í Hafnarfjörð

Af illviðráðanlegum orsökum hefur verið ákveðið að flytja kynbótasýninguna á Brávöllum/Selfossi (26.-28. maí) yfir á Sörlastaði í Hafnarfirði.

Hollaraðir, tímasetningar og skipulag allt stendur sem fyrr - utan breytt staðsetning sýningarinnar.

Beðist er velvirðingar á því óhagræði sem þessu kann að fylgja fyrir knapa og umráðamenn gripa.

ph/okg