Kynbótasýning á Iðavöllum

Kynbótasýning fer fram á Iðavöllum á Fljótsdalshéraði dagana 1. til 2. júní, verði þátttaka næg.
Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“.
Einnig er hægt að skrá hross til sýningar hér á heimasíðu RML í gegnum flýtihnapp á forsíðunni. Rétt er að árétta að einungis er hægt að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er lengur hægt að greiða með millifærslu.
Ef korti er hafnað færist skráningin í „eldri pöntun“ en hrossið skráist ekki inn á sýninguna. Endilega takið samt niður pöntunarnúmerið því þá er hægt að fara inn í „eldri pöntun“, slá inn pöntunarnúmerið og þá opnast greiðslugluggi þar sem hægt er að skrá á ný inn upplýsingar um greiðslukort.
Þegar greiðsla hefur tekist þá á að koma kvittun í tölvupósti, ef kvittunin kemur ekki hefur skráning trúlega ekki tekist. Þeir sem hafa aðgang að WF geta með því að fara inn í „sýningar“ séð hvort hrossið er komið inn á sýninguna.
Ef hrossið birtist þar hefur allt gengið upp og hrossinu verður úthlutað tíma. Röðun hrossa verður síðan birt hér á heimasíðunni í síðasta lagi mánudaginn 29. maí.
Síðasti skráningar- og greiðsludagur er mánudagurinn 22. maí. Verð fyrir fullnaðardóm er 24.500 kr. en fyrir sköpulags- eða hæfileikadóm 19.000 kr.
Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag áður en sýningarvikan hefst, í síma 516-5000.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is. Endurgreiddar eru kr. 14.000 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 11.000 kr. fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm.
Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn framvísun læknisvottorðs. Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí nk.
Allar nánari upplýsingar í síma RML, 516-5000 eða hér á heimasíðunni undir "Kynbótastarf/hrossarækt/kynbótasýningar" þar sem t.d. má finna leiðbeiningar um hvernig á að skrá hross á sýningu.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið hross@rml.is.
Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. Fyrir stóðhesta fimm vetra og eldri þurfa niðurstöður úr blóðsýni og röntgenmynd af hæklum að liggja fyrir í WorldFeng.
Ef þessar upplýsingar vantar er ekki hægt að skrá þá á sýningu. Ekki er hægt að skrá hryssur og geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.

lr/hh