Kynbótasýning á Fjórðungsmóti Austurlands 2015 - lágmörk lækkuð

Dagana 2.-5. Júlí verður verður fjórðungsmót Austurlands haldið á Stekkhólma. Fagráð í hrossarækt gaf í upphafi árs út lágmörk fyrir kynbótahross inn á kynbótasýningu mótsins en fagráð hefur ákveðið að lækka lágmörkin í öllum flokkum um tíu stig og eru þau nú eftirfarandi:

Alhliðahross     

Aðaleink     

Klárhross     

Aðaleink     

Stóðhestar 7 vetra og eldri   

8,15 

Stóðhestar 7 vetra og eldri  

8,05

Stóðhestar 6 vetra

 8,10

Stóðhestar 6 vetra

8,00

Stóðhestar 5 vetra

8,00

Stóðhestar 5 vetra 

7,90

Stóðhestar 4 vetra

7,85 

Stóðhestar 4 vetra

7,75

 

 

 

 

Hryssur 7 vetra og eldri

8,05

 Hryssur 7 vetra og eldri

7,95

Hryssur 6 vetra

8,00

Hryssur 6 vetra

7,90

Hryssur 5 vetra

7,90

Hryssur 5 vetra

7,80

Hryssur 4 vetra

 7,75

Hryssur 4 vetra

7,65

 

Rétt til þátttöku í kynbótasýningu mótsins hafa hross sem náð hafa lágmörkum fyrir Fjórðungsmót og eru ræktuð eða í eigu félagsmanna þeirra hestamannafélaga sem eiga þáttökurétt á mótinu. Búið er að stofna sýninguna í WorldFeng og eigendur hrossanna verða að skrá þau inn í mótið fyrir 25. Júní. Þeir stóðhestar 5. vetra og eldri sem ekki komust í kynbótadóm í vor vegna verkfalls dýralækna hjá Matvælastofnun og eru af þeim félagssvæðum sem eiga þátttökurétt á mótinu er heimilt að koma í fullnaðardóm á kynbótasýningu Fjórðungsmótsins.

Sýningargjöld í kynbótasýningu Fjórðungsmótsins verða innheimt samkvæmt gjaldskrá RML, eða 16.700 kr fyrir reiðdóm hjá þeim hrossum sem koma inn á lágmörkum og 21.700 kr fyrir fullnaðardóm stóðhesta sem ekki komust í dóm í vor vegna verkfalls.

þk/okg