Kynbótaráðgjöf, nú er rétti tíminn!

Rétt er að minna bændur á að í desember var keyrð uppfærsla á kynbótamati í nautgriparækt og í framhaldi af því kom Fagráð í nautgriparækt saman og ákveðið var hvaða ný naut verða í notkun næstu mánuði.

Því er rétt að benda kúabændum á að nú er rétti tími að panta sér kynbótaráðgjöf, það er hægt að gera hér í gegnum heimasíðuna, eða með því að hafa samband við einhvern í nautgriparæktarhópnum.

Á myndinni sem fylgir má sjá dæmi um hvernig sæðingaáætlun lítur út. 

Sjá nánar

Panta kynbótaáætlun

Kynbótaráðgjöf - Tarfurinn

Nautgriparækt - starfsmenn

eng/okg