Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Þá er stórskemmtilegu dómavori að ljúka og að verða ljóst hvaða hross vinna sér inn þátttökurétt á Landsmóti. Á forsíðu WorldFengs má sjá „Sýningarskrá fyrir Landsmót 2024“ en þar kemur fram hvaða hross komast inn á Landsmót þegar yfirlitssýningum lýkur föstudaginn 21 júní. Ef fleiri en eitt hross eru jöfn í síðasta sæti inn á mótið (til dæmis fleiri en ein hryssa í 15. sæti í flokki 7 vetra og eldri hryssna) þá er þeim öllum heimil þátttaka á mótinu.
Eigendur hrossa sem vinna sér inn þátttökurétt á mótinu en ætla sér ekki að mæta með þau af einhverjum ástæðum eru beðnir um að láta vita fyrir klukkan 16:00 mánudaginn 24. júní, þannig hægt sé að bjóða hrossum sem eru neðar á listanum þátttöku á mótinu. Hægt er að gera það á thorvaldur@rml.is eða í síma 866-2199.
Afkvæmasýndir stóðhestar
Lágmörk vegna afkvæmasýninga stóðhesta miðast við kynbótamat aðaleinkunnar eins og það reiknast að afloknum sýningum á Íslandi vorið 2024 og fjölda dæmdra afkvæma. Öll dæmd afkvæmi hestanna liggja til grundvallar í kynbótamatinu. Öll afkvæmi sem fylgja hestunum skulu vera dæmd í kynbótadómi. Heiðursverðlaunahestum skulu fylgja 10 afkvæmi í sýningu en 1. verðlauna hestum 6 afkvæmi.
Haft verður samband við eigendur stóðhesta sem eiga rétt á að koma með afkvæmahóp til sýninga á Landsmóti eftir helgina eða um leið og keyrslu á nýju kynbótamati verður lokið.
Bestu þakkir fyrir frábært samstarf í vor sýnendur og eigendur kynbótahrossa, og starfsfólk sýninga!
þk/hh