Kynbótahross á fjórðungsmót

Ákveðið hefur verið að breyta lágmörkum einkunna til þátttöku einstaklingssýndra kynbótahrossa á fjórðungsmótum sumarið 2013.

Lágmörkin verða því eftirfarandi:

Stóðhestar 4 vetra   7,85
Stóðhestar 5 vetra   8,00
Stóðhestar 6 vetra   8,15
Stóðhestar 7 v. og eldri   8,20
     
Hryssur 4 vetra   7,75
Hryssur 5 vetra   7,90
Hryssur 6 vetra   8,05
Hryssur 7 v. og eldri   8,10

 

Eins og áður hefur verið auglýst ræðst þátttökuréttur af lögheimili eiganda þegar hrossið mætti til dóms í vor.

Sýningargjöld á fjórðungsmótunum verða eins og fyrir hefðbundinn reiðdóm 13.500 kr.

Hér að neðan eru tenglar í lista yfir þau kynbótahross sem ná lágmörkum á FM í Hornafirði og á Kaldármelum eftir breytinguna.

  • Áríðandi er að strax verði haft samband við Guðlaug Antonsson hrossaræktarráðunaut RML í síma 892-0619 ef einhverjar athugasemdir eru við listann.
  • Einnig væri gott að vita sem fyrst ef einhver hross munu ekki mæta.

Hross á FM í Hornafirði 2013

Hross á FM á Kaldármelum 2013