Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Í vor verður þess krafist að búið verði að taka DNA-sýni úr öllum hryssum sem mæta til kynbótadóms. Ef það er ekki búið verður ekki hægt að skrá þær til sýningar. Í fyrstu verður einungis gerð krafa um að búið sé að taka stroksýnið og að það hafi verið skráð í WF. Niðurstöður úr greiningu þurfa ekki að liggja fyrir. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) býður upp á stroksýnatökur og hægt er að panta sýnatöku hjá eftirtöldum aðilum:
Upplýsingar er einnig hægt að fá í síma 516-5000 eða í gegnum netfangið rml@rml.is.
Í lok þessa mánaðar verður opnað á skráningar á kynbótasýningar vorsins og því best að panta sem fyrst DNA-sýnatöku þannig að allt sé tilbúið fyrir skráningu.
Hér á heimasíðunni verður hægt að skrá hross til sýningar en einnig má finna hér á vefnum ýmsan fróðleik varðandi kynbótasýningar og hrossarækt almennt.
Sjá nánar:
hes/okg