Krafa um DNA-sýni úr hryssum

Rétt er að minna á eftirfarandi:

Í vor verður þess krafist að búið verði að taka DNA-sýni úr öllum hryssum sem mæta til kynbótadóms. Í fyrstu verður einungis gerð krafa um að búið sé að taka stroksýnið og að það hafi verið skráð í WF. Niðurstöður úr greiningu þurfa ekki að liggja fyrir.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) býður upp á stroksýnatökur og er hægt að panta sýnatöku hjá eftirtöldum aðilum:

  • Höllu Eygló Sveinsdóttur, í síma 516-5024 eða á netfangið halla@rml.is
  • Pétri Halldórssyni, í síma 487-1513/ 862-9322 eða á netfangið petur@rml.is
  • Steinunni Önnu Halldórsdóttur, í síma 516-5045 eða á netfangið sah@rml.is
  • Vigni Sigurðssyni, í síma 516-5047 eða á netfangið vignir@rml.is 
  • Eyþóri Einarssyni, í síma 516-5014 eða á netfangið ee@rml.is
  • Kristjáni Óttari Eymundssyni, í síma 516-5032 eða í netfangið koe@rml.is 

Upplýsingar er einnig hægt að fá í síma 516-5000 eða á netfanginu rml@rml.is.
Varðandi stóðhestana er engin breyting frá því sem verið hefur. Ef einhverjir eru ekki með það á hreinu hvaða kröfur eru gerðar varðandi þá er rétt að rifja það upp:

  • Allir stóðhestar þurfa að vera DNA-greindir og hafa sönnun á ætterni.
  • Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að hafa verið tekið blóðsýni og það skráð í WF. Ekki er nóg að taka stroksýni. Blóðsýni eru geymd en stroksýnum er hent um leið og þau hafa verið greind.
  • Röntgenmynda skal hækilliði allra stóðhesta sem náð hafa fimm vetra aldri. Niðurstöður þurfa að liggja fyrir í WorldFeng áður en hesturinn er skráður á sýningu. Heimilt er að taka myndina á því ári sem hesturinn nær 5 vetra aldri.

Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar. Hér á heimasíðunni er að finna ýmsan fróðleik varðandi DNA-sýnatökur, kynbótasýningar og hrossarækt almennt.

Sjá nánar

Kynbótasýningar

hes/okg