Kadmíum yfir leyfilegum mörkum í áburði frá Skeljungi

Þann 11. júní síðastliðinn bárust Matvælastofnun niðurstöður efnagreininga á áburði sem Skeljungur hf. flutti inn í vor. Samkvæmt niðurstöðunum er kadmíummagnið í flestum þeim tegundum áburðarins, sem inniheldur fosfór, yfir 50 mg/kg fosfórs, sem eru efri leyfileg mörk, skv. reglugerð 630/2007. Hæsta gildið var 111 mg kadmíum í kg fosfórs.

Niðurstöður efnagreininganna voru tilkynntar Skeljungi samdægurs og með hliðsjón af þeim hefur Matvælastofnun afskráð þessar áburðartegundir og bannað frekari sölu og dreifingu þeirra til notenda. Stofnunin hefur gert þá kröfu að Skeljungur hf. upplýsi kaupendur nú þegar um málið og að þeir geti skilað áburðinum sé hann enn til staðar.

Áburðartegundirnar sem um er að ræða eru eftirtaldar:

Sprettur 22-7-6+Se
Sprettur 20-10-10+Avail+Se
Sprettur 25-9-8
Sprettur 20-10-10
Sprettur 16-15-12
Sprettur 22-6-13
Sprettur 12-12-20+B+Avail
Sprettur 22-14-9
Sprettur 26-13
Sprettur 25-5+Avail+Se
Sprettur 25-5
Sprettur 20-12-8+Se
Sprettur 22-7-6.

Áburðurinn hefur hvorki í för með sér bráða hættu fyrir umhverfi né dýr, en kadmíum er þungmálmur sem safnast upp í jarðvegi og með endurtekinni notkun á kadmíumríkum áburði skapast hætta á skaðlegum áhrifum vegna þess að plöntur taka efnið upp í auknum mæli.

Í yfirlýsingu frá framleiðanda, sem Skeljungur afhenti Matvælastofnun í ársbyrjun, kom fram að einungis yrði notaður fosfór sem innihéldi undir 5 mg kadmíum/kg fosfórs. Með yfirlýsingunni fylgdi til staðfestingar, vottorð frá efnagreiningastofu varðandi innihald kadmíum í áburðinum.

Samkvæmt niðurstöðum mælinga stenst umræddur áburður ekki þær kröfur sem gerðar eru skv. löggjöfinni um innihald kadmíum og ætti að skipta honum út fyrir áburð sem uppfyllir kröfur að þessu leyti. Skeljungur hefur sent viðskiptavinum sem keypt höfðu áburðinn tilkynningu um málið og mun veita nánari upplýsingar þegar þær liggja fyrir auk þess að grípa til viðeigandi ráðstafana í samráði við MAST, m.a.  að fyrirtækið hyggist leita leiða til að útvega kaupendum annan áburð. Fyrirtækið biðst velvirðingar á málinu. 

Heimild: Matvælastofnun, www.mast.is

/gj