Jólakveðja

Myndin er tekin í blíðskaparveðri á vetrarsólstöðum 2018. Bærinn er Laugarbakkar í Ölfusi.
Myndin er tekin í blíðskaparveðri á vetrarsólstöðum 2018. Bærinn er Laugarbakkar í Ölfusi.

Stjórn og starfsfólk Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins senda bændum og landsmönnum öllum hugheilar óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár með kærum þökkum fyrir góð samskipti og samstarf á árinu sem er að líða.

Skrifstofur RML verða lokaðar á aðfanga- og gamlársdag en opið verður milli jóla og nýárs, þ.e. fimmtudaginn 27. og föstudaginn 28. des. Opnum aftur á nýju ári miðvikudaginn 2. janúar 2019.

Hafið það gott yfir hátíðarnar.

Stjórn og starfsfólk RML