Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Matvælastofnun bárust 76 gild tilboð um kaup og sölu á tilboðsmarkaði með greiðslumark mjólkur þann 1. september 2016, sem nú er lokið. Þetta kemur fram á heimasíðu Matvælastofnunar. Markaðurinn að þessu sinni var með þeim stærstu frá upphafi markaðar fyrir greiðslumark mjólkur. Kveðið er á tilboðsmarkað með greiðslumark mjólkur í reglugerð um markaðsfyrirkomulag við aðilaskipti að greiðslumarki mjólkur á lögbýlum nr. 190/2011 með síðari breytingum. Aðeins var hægt að bjóða til sölu ónotað greiðslumark mjólkur á tilboðsmarkaðnum að þessu sinni.
Við opnun tilboða um kaup og sölu á greiðslumarki mjólkur þann 1. september 2016 hefur komið fram jafnvægisverð á markaði krónur 240 kr. fyrir hvern lítra mjólkur. Þetta er 30 króna hækkun á jafnvægisverði, eða 14,3%, frá síðasta tilboðsmarkaði sem haldinn var 1. apríl sl. en þá var jafnvægisverðið 210 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.
Myndræn framsetning sýnir uppsafnað kaup- og sölumagn við ákveðið verð. Skurðpunktur línanna reynist því aðeins vera niðurstaða á uppboðinu ef ofangreint hlutfall kaup og sölumagns reynist vera jafnt og 1. Sé hlutfallið aftur á móti undir einum þá er skurðpunktur línanna ekki birtingarmynd á jafnvægisverði né jafnvægismagni. |
Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði 240,- kr./l. eða lægra selja nú greiðslumark sitt. Matvælastofnun, búnaðarmálaskrifstofa, mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast á Bændatorginu.
Heimild: Matvælastofnun (MAST)