Ingvar Björnsson kominn til starfa á ný

Ingvar Björnsson ráðunautur RML hefur nú hafið störf á ný eftir fæðingarorlof. Hann hefur starfað á Akureyri hingað til en mun nú breyta um starfsstöð þar sem hann hefur flust búferlum ásamt fjölskyldu sinni að Hólabaki í Húnavatnssýslu.

Ingvar mun starfa í 50% starfshlutfalli og hafa aðsetur á starfsstöð RML á Blönduósi en þar eru einnig starfandi ráðunautarnir Þórður Pálsson, Anna Margrét Jónsdóttir og Gunnar Ríkharðsson. Ingvar mun áfram sinna verkefnum sem snúa að jarðræktarmálum.

Viðvera Ingvars á skrifstofu verður að jafnaði þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá klukkan 10-16.

/okg