Hundslegir gestir á Búgarði

Rólegt að gera í vinnunni hjá þessum
Rólegt að gera í vinnunni hjá þessum

Þeir létu lítið fyrir sér fara gestirnir sem heimsóttu Búgarð á dögunum.  Hundslegir lágu þeir í kassanum og létu lítið á sér bera.  Þarna voru mættir tilvonandi smalar á leið til nýrra eigenda en bændur á Möðruvöllum þau Birgitta og Þórður áttu annan hundinn og tóku hinn í fóstur þar til fyndist ferð fyrir hann.  Þrátt fyrir að vera hinir rólegustu "í vinnunni á Búgarði" var heldur annað uppi á teningnum þegar heim í Möðruvelli var komið enda líf og fjör þegar fjórir hundar hittast og sá elsti aðeins 7 mánaða gamall.
Hundadagar á Möðruvöllum
Hver er sætasti hundurinn - essasú?

Hundslegir gestir á Búgarði
Það var rólegt að gera hjá þeim í vinnunni þessum.

AGG/BL