Hrútaskráin 2014-15 væntanleg - komin á vefinn

Loks hillir undir að "jólabók" sauðfjárræktenda líti dagsins ljós en hún er væntanleg úr prentun um miðja næstu viku eða rétt fyrir kynningarfundi búnaðarsambandanna um hrútakost sauðfjársæðingastöðvanna. Fundirnir hefjast eins og auglýst hefur verið fimmtudaginn 20. nóvember n.k. Fyrir þá sem eru orðnir spenntir og geta alls ekki beðið er vefútgáfan komin hér á vefinn.

Hrútaskránni verður svo dreift með hefðbundnum hætti eða eins og undanfarin ár.

Njótið vel!

Sjá nánar:

Hrútaskrá 2014-2015 

/gj