Hrútaskrá 2024-2025 er komin á vefinn

Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna fyrir veturinn 2024-2025 er komin á vefinn. Skráin er á hefðbundnu pdf-formi og hægt er nálgast hana undir "Kynbótastarf -> Sauðfjárrækt -> Hrútaskrá" eða með því að nota hlekkinn hér neðar.

Skráin á eftir ylja áhugamönnum um sauðfjárrækt um hjartarætur og við vonum að sauðfjárræktendur og aðrir áhugamenn um sauðfjárrækt njóti lesningarinnar. Prentútgáfa skráarinnar kemur út í næstu viku og verður dreift með hefðbundnum hætti, m.a. á hinum svokölluðu hrútafundum.

Skráin er 60 síður að stærð, litprentuð í A4-broti og inniheldur upplýsingar um 52 hrúta sem notaðir verða til sæðinga í vetur. Segja má að þessi hrútaskrá marki ákveðin tímamót. Samsetning hrútakostsins er með allt öðrum hætti en áður hefur sést en af þessum 52 hrútum eru aðeins 7 að hefja sinn annan vetur á stöð. Meðalaldur hrúta á stöð hefur aldrei verið lægri en stöðvarnar eru skipaðar 35 lambhrútum og hlutfall nýrra hrúta á stöð það mesta sem sést hefur. Í hrútavalinu hefur verið lögð áhersla á hraða innleiðingu verndandi arfgerða gagnvart riðu og eftir föngum lágmörkun skyldleikaræktar. Þrátt fyrir þetta er hrútakosturinn öflugur hvað varðar kjötgæði og mæðraeiginleika þó því verði ekki neitað að hér er að miklu leyti um óreynda hrúta að ræða. Bakgrunnur þeirra er þó sterkur. Þá eru í boði nýir valkostir á sviði feld- og forystufjár.

Ritstjóri skráarinnar er Guðmundur Jóhannesson en efni skráarinnar er að mestu tekið saman og skrifað af Árna B. Bragasyni, Eyþóri Einarssyni, Fanneyju Ólöfu Lárusdóttur og Þórdísi Þórarinsdóttur. Flestar ljósmyndir í skránni tók Halla Eygló Sveinsdóttir en auk hennar tóku Birna Sigurðardóttir og Torfi Bergsson myndir af hrútum. Rósa Björk Jónsdóttir sá um uppsetningu og umbrot og prentun er í höndum Fjölritunar- og útgáfuþjónustunnar í Borgarnesi. Hér með er þökkum til þessara aðila og fjölmargra annarra er lögðu hönd á plóg komið á framfæri en að baki liggur mikil vinna sem sinna þarf á stuttum tíma. Þá er auglýsendum þakkað sérstaklega þeirra framlag sem gerir þessa útgáfu mögulega í því formi sem hún er.

Sjá nánar:

Hrútaskrá - smellið hér >>>