Hrossaræktin 2024 - Ráðstefna 12. október

Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs fer fram í félagsheimili Fáks í Víðidal laugardaginn 12. október og hefst klukkan 13:00. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta. Á dagskrá eru afar áhugaverður fyrirlestur um mögulegar nýjungar í kynbótamati í hrossarækt, yfirferð yfir hrossaræktarárið og verðlaunaveitingar.

Laugardagur 12. október 2024
Dagskrá:
13:00 Setning – Nanna Jónsdóttir formaður fagráðs og deildar hrossabænda hjá Bændasamtökum Íslands
13:10 Hrossaræktarárið 2024 – Þorvaldur Kristjánsson
13:30 Heiðursverðlaunahryssur fyrir afkvæmi 2024
13:45 Verðlaunaveitingar:
-Verðlaun, hæsta litförótta hryssa ársins í kynbótadómi
-Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)
-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Klárhross (aldursleiðrétt)
-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Alhliða hross (aldursleiðrétt)
14:15 Þorvaldur Árnason – Hvernig er best að nýta keppnisdóma í kynbótamatinu? Spennandi möguleiki sem áhugavert er að kynna sér og ræða
14:30 Umræður í framhaldi af erindum og fyrirspurnir úr sal
15:30 Viðurkenningar fyrir tilnefnd ræktunarbú ársins 2024


Fundarslit um 16:15
Öll velkomin !

 /hh