Hollaröðun miðsumarssýningar á Selfossi, 25.-29.júlí

Ein miðsumarssýning mun fara fram vikuna 25.-29.júlí á Selfossi, ekki náðist nægilega mikil þátttaka á Héraði né á Hólum svo þeim sýningum var aflýst.

Á Selfossi eru 112 hross skrá til dóms og munu dómar hefjast stundvíslega kl. 8:00 mánudaginn 25.júlí og ljúka með yfirlitssýningu föstudaginn 29.júlí. Hollaröðun má sjá hér að neðan.

Við viljum biðja knapa að mæta tímanlega svo hægt sé að halda tímasetningum sem best.

Sjá nánar:
Röðun hrossa
Röðun knapa

/sem