Heimsóknir ráðunauta í kornakra í júní 2024

Benny Jensen ráðunautur frá BJ-Agro í Danmörku kemur til landsins mánudaginn 10. júní næstkomandi. Hann mun heimsækja bú og skoða kartöflugarða en einnig mun hann skoða kornakra en síðustu ár hefur RML boðið upp á kornskoðun með Benny bændum að kostnaðarlausu. Reynt er að horfa til þess að dreifa staðsetningum milli ára eins og hægt er.
Í ár verður boðið upp á kornskoðun í ökrum í Fljótshólum í Flóa og Pétursey í Mýrdal. Þar verða akrar skoðaðir og m.a. metið hvernig til hefur tekist, hvort ástæða sé til að bæta úr einhverju eða hvort eitthvað hefði mátt gera betur.

Kornbændum og öðru áhugafólki um kornrækt er boðið að skoða tiltekna akra með Benny og ráðunautum frá RML.

Ekki verður hægt að óska eftir heimsókn í sérstaka akra að þessu sinni og ekki verður innheimt þátttökugjald af þeim sem mæta.
Dagskrá heimsóknanna er eftirfarandi (með fyrirvara um breytingar og ítarlegri upplýsingar sem gætu komið inn)

Mánudaginn 10. júní:
Fljótshólar í Flóa, kl. 13:30-15:00.
Pétursey í Mýrdal, kl. 16:30-17:30.

Nánari upplýsingar veita Þórey Gylfadóttir, s. 8483139 thorey@rml.is, og Eiríkur Loftsson, s. 8996422 el@rml.is, ráðunautar hjá RML.

/hh