Heimsókn Norsk Landbruksrådgiving SörÖst á starfsstöð RML á Hvanneyri

Síðastliðinn föstudag, þann 7. júní fengu starfsmenn RML á Hvanneyri heimsókn frá Norsk Landbruksrådgiving SörÖst en það er norskt ráðgjafarfyritæki í landbúnaði.

Það var Ragnar F. Sigurðsson sem fylgdi hópnum, en hann starfaði um tímabil hjá fyrirtækinu í Ási í Noregi. Þessi ráðgjafarmiðstöð leggur helst áherslu á ráðgjöf varðandi grænmetisrækt og ráðgjöf vegna landbúnaðarbygginga.

Hópurinn kom meðal annars til Íslands til að fræðast um uppbyggingu landbúnaðarráðgjafar á Íslandi og kynnast því hvernig unnið er að slíkum málum hér á landi og vonum við að hann hafi haft gagn og gaman af.

Hér má nálgast slóðina á heimasíðu fyrirtækisins hafi einhver áhuga á að kynna sér starfsemi þess.

okg