Greiðslumark mjólkur lækkaði verulega í verði milli markaða

Niðurstöður tilboðsmarkaðar með greiðslumark í mjólk 1. apríl 2014 hafa verið birtar á vef Matvælastofnunar. Jafnvægisverðið reyndist 260 kr. fyrir hvern lítra mjólkur. Alls bárust Matvælastofnun 32 tilboð um kaup eða sölu á greiðslumarki og var framboðið magn 1.891.961 lítrar en boðið var í 71.784 lítra. Kauphlutfall viðskipta reyndist 48,76%.

Gild tilboð um sölu voru 28 en 2 kauptilboð bárust.

Þeir sem lögðu inn kauptilboð og buðu 260 kr eða hærra í lítrann fá nú að kaupa hlutdeild í því greiðslumarki sem til sölu kemur. Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri 260 kr/lítra eða lægra selja nú greiðslumark sitt.

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. nóvember 2013 sýnir eftirfarandi:

  • að framboð er nú 182,9 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
  • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 6,7 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði.
  • að verð á greiðslumarki nú er 60 krónum lægra en það var á markaði þann 1. nóvember 2013
 
/gj