Grábotni 06-833 og Máni 09-849 hlutu verðlaun sæðingastöðvanna

Grábotni 06-833
Grábotni 06-833

Við lok aðalfundar Landssamtaka sauðfjárbænda voru tveir kostahrútar sæmdir nafnbótinni „mesti alhliða kynbótahrútur sæðingastöðvanna árið 2013“ og „besti lambafaðir sæðingastöðvanna á starfsárinu 2011-2012“.

Sá hrútur sem hlýtur þann heiður að vera valinn mesti alhliða kynbótahrútur sæðingastöðvanna árið 2013 er Grábotni 06-833 frá Vogum 2 í Mývatnssveit og er ræktandi hans Gunnar Rúnar Pétursson. Í umsögn ráðunauta segir um Grátbona: „Faðir Grábotna er Grímur 01-928 frá Staðarbakka en móðir hans heitir Grábotna og er hún í langfeðratali komin út af Hestshrútunum Áli 00-868 og Krák 87-920. Grábotni var seldur lambshaustið frá Vogum að Geiteyjarströnd í Mývatssveit. Þar vakti hann strax athygli sem magnaður lambafaðir. Eftir tveggja ára notkun höfðu afkvæmi Grábotna skilað honum einu besta BLUP-kynbótamati allra hrúta í landinu fyrir kjötgæðaeiginleika. Í framhaldi af þessum lofandi árangri var Grábotni falaður inn á sæðingastöðvarnar árið 2009.

Á stöðvunum hefur hann átt glæstan feril og var næstvinsælasti hrútur stöðvanna haustið 2009. Hann stóðst væntingar sem lambafaðir og jafnframt steig kynbótamatið fyrir dæturnar. Var hann síðan mest notaði hrútur stöðvanna haustin 2010 og 2011. Í heildina hafa ríflega 6.000 ær verið sæddar við Grábotna.

Mikill þroski og góð bollengd einkennir lömbin undan Grábotna og er enginn sæðingastöðvahrútur um þessar mundir sem sýnir jafn mikið útslag í einkunn fyrir fallþunga. Samkvæmt hrútaskýrslu fjárræktarfélaganna er einkunn hans 151 fyrir fallþunga byggð á upplýsingum um tæplega 2.600 lömb. Gerð lambanna er úrvalsgóð og bakvöðvinn þykkur. Læraholdin bregðast sjaldan hjá afkvæmunum og eru ásamt malaholdum oft allra sterkasti eiginleiki þessara lamba. Grábotni skartar geysiháu kynbótamati fyrir kjötgæðaeiginleika eða 127 fyrir gerð og 125 fyrir fitu.

Til eru upplýsingar um ríflega 1.400 dætur hans í skýrslum fjárræktarfélaganna og eru þær að jafnaði feykifrjósamar og mjólkurlagnar. Það kemur m.a. fram í hárri kynbótamatseinkunn fyrir þessa eiginleika en fyrir mjólkurlagni er hún 111 og frjósemi 113. Sökum hinnar víðtæku notkunar, þá eru þessar tölur ekki spá, heldur fjalltraust mat. Fáir hrútar standa jafn hátt í heildareinkunn fyrir kynbótamat og er hann þar í hópi 10 efstu stöðvahrúta, bæði lifandi og dauðra. EF skoðað er hve margir hrútar ná einkunninni 120 fyrir gerð og fitu og 110 fyrir mjólkurlagni og frjósemi, þá er aðeins einn hrútur sem er svo jafnvígur og það er Grábotni.

Jafnvígasti kynbótahrútur allra tíma?
Grábotni var felldur í janúar 2013, talinn fullnotaður. Synir Grábotna finnast víða um land og hafa margir staðið sig með prýði sem lambafeður og er líklegt að sterkir alhliða kynbótahrútar í þeirra hópi eigi eftir að koma fram á næstu árum. Nú þegar er einn sonur Grábotna kominn í hóp sæðingastöðvahrúta, Grámann 10-884 frá Bergsstöðum á Vatnsnesi.“

Í umsögn ráðunauta kom fram að Grábotni sé einn jafnvígasti kynbótahrútur landsins nú á seinni árum, ef ekki allra tíma og ber með sóma heiðursnafnbótina „mesti kynbótahrúturinn 2013“.

Máni 09-849 er besti lambafaðirinn - afkvæmi með þykkan bakvöðva og mikil lærahold
Viðurkenning sæðingastöðvanna fyrir besta lambaföður stöðvanna á starfsárinu 2011-2012 kemur í hlut Mána 09-849 en hann fæddist á tilraunabúi Landbúnaðarháskóla Íslands að Hesti í Borgarfirði vorið 2009.

Máni 09-849

Haustið 2010 var hann í afkvæmarannsókn á veturgömlu hrútunum á Hesti þar sem kostir hans reyndust helstir mjög góð gerð sláturlamba og þykkur og mjög vel lagaður bakvöðvi í mælingum á lifandi lömbum. Lærahold afkvæma hans voru einnig mikil. Hann þótti því verðskulda að vera tekinn til notkunar á sæðingastöð veturinn 2010-2011.

Máni fékk strax í desember 2010 mikla notkun, rúmlega 700 ær voru sæddar við honum þá skv. skráningum og sömu notkun fékk hann í desember 2011. Þegar unnið var sameiginlegt uppgjör hrútlamba undan stöðvahrútunum í október 2011 átti hann nokkuð stóran afkvæmahóp þar. Hann var meðal efstu hrúta og var í rauninni aðeins sjónarmun á eftir Gosa 09-850, sigurvegara síðasta árs. Við uppgjör hrútlamba undan sæðingastöðvahrútum haustið 2012 átti Máni aftur stóran hóp hrútlamba og stóð næstefstur í heildarstigun lamba, aðeins Borði 08-838 sem hlaut verðlaunin 2010, átti betri hóp. Leiðrétt þykkt bakvöðva í þessum hrútahópi var 31,1 mm. Lögun bakvöðvans var einnig frábær í afkvæmum Mána, einkunnin 4,3 að jafnaði sem er með því besta sem gerist ásamt því að fituþykktin var hófleg eða 3,1 mm. Meðalþungi lambanna var 47,1 kg og í fallþungauppgjöri fjárræktarfélaganna fyrir árið 2012 hefur Máni nú einkunnina 116 þar sem liggja að baki upplýsingar um tæplega 1.000 lömb. Afkvæmi hans eru skv. uppgjörinu 0,33 kg þyngri en meðallambið Við stigun hrútlamba undan Mána fengu þau að jafnaði 84,1 stig og aðeins voru það lömbin undan Borða sem voru hærri í heildarstigum haustið 2012. Afkvæmi Mána hafa góða frambyggingu, eru útlögugóð með góð bakhold og öflug lærahold. Bollengd er í góðu meðallagi. Það er því ljóst að kjötgæðaeiginleikar Mána eru óumdeildir.

Í afkvæmarannsóknum haustið 2012 komu fram á sjónarsviðið nokkrir eflingssynir Mána um allt land sem fróðlegt verður að fylgjast með á komandi árum, að sögn ráðunauta. Máni var hins vegar felldur haustið 2012.

Eyþór Einarsson ráðunautur hjá RML, Eyjólfur Kristinn Örnólfsson hjá LbhÍ, Þórarinn Ingi Pétursson (tók við verðlaunum fyrir Gunnar Rúnar Pétursson, ræktanda Grábotna) og Eyjólfur Ingvi Bjarnason, ráðunautur hjá RML. Mynd: Bændablaðið


/Texti: Eyþór Einarsson og Eyjólfur Ingvi Bjarnason / TB