Fyrsta tölublað Freyju á þessu ári komið út

Í ritstjórnarpistli blaðsins segjast útgefendur hafa farið yfir stöðuna í upphafi þessa útgáfuárs og þá reynslu sem safnast hafi í sarpinn síðustu tvö ár. Í kjölfarið var tekin sú ákvörðun að hætta útgáfu blaðsins á prentuðu formi, þar sem slíkt var bæði tímafrekt og stóð ekki undir sér kostnaðarlega. Útgefendur ætla þó að halda ótrauð áfram í útgáfustarfinu á vefnum og nýta fjármuni og vinnustundir fremur í að efla blaðið sem veftímarit.

Bæði er hægt að lesa blaðið á heimasíðu útgáfufélagsins, sem og hlaða því niður sem pdf-skjali.

rml/gj

Sjá nánar:

Fyrsta tölublað Freyju 2013