Fundahöld vegna stöðu mála á Norður- og Austurlandi

Frá Heiðargarði í Aðaldal
Frá Heiðargarði í Aðaldal

Fulltrúar frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Bændasamtökunum, Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins og Bjargráðasjóði héldu sinn annan fund í morgun til að fara yfir stöðu mála á Norður- og Austurlandi þar sem víða eru mikil snjóþyngsli og á mörgum bæjum hætta á kali vegna svellalaga á túnum.

Á fundinum var m.a. farið yfir stöðu mála hvað varðar hey- og fóðurbirgðir og jafnframt hvort nægjanlegt magn væri til af sáðvöru og áburði. Þá var auk þess rætt um aðkomu ríkis og sveitarfélaga að málinu.

Eins og sakir standa er erfitt að meta nákvæmlega umfang vandans þar sem að það ræðst m.a. af veðurfari næstu vikna. Rétt þykir því að búa sig undir það versta en vona um leið hið besta.

Heimild: Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

okg