Fréttir af Fjárvís

Upp á síðkastið hefur borið á ýmsum vandræðum í skýrsluhaldsforritinu Fjárvís en þau koma til af nokkrum ástæðum. Sú helsta var netárás tölvuhakkara sem miðaði að því hægja á kerfinu. Meðal annars orsökuðu þessi vandræði að illa gekk að skrá sæðingar á ám og einnig að mikið var um villuboð í kerfinu. Reynt hefur verið laga þetta og vonandi virkar kerfið ágætlega núna hjá flestum aðilum.

Núna á að vera hægt að skrá sæðingarnar í fleiri tegundum vafra en Internet Explorer og er mælt með því að nota Google Chrome-vafrann. Þeir bændur sem nota Machintosh-tölvur ættu því að prófa Fjárvís í þeim vafra til vinna skýrsluhaldið en til þessa hefur það ekki verið hægt á slíkum vélum.

Bændur eru hvattir til þess að hafa samband við starfsmenn RML í síma 516-5000 vanti þá aðstoð við skýrsluhaldið.

eib/okg