Umsóknarfrestur um starf forritara hjá RML framlengdur til 30. mars

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir forritara sem gæti sinnt fjölbreyttum þróunar- og hugbúnaðarverkefnum í landbúnaði.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Þátttaka í ráðgjafateymum RML sem sinna hugbúnaðargerð og upplýsingatækni.
  • Vinna við hugbúnaðargerð vefforrita RML.
  • Vinna við Oracle gagnagrunna.
  • Önnur verkefni s.s. líkanagerð í Excel og þróunarverkefni.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
  • Þekking eða framhaldsmenntun á sviði tölvunarfræði eða verkfræði.
  • Starfsreynsla við forritun æskileg.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Þekking á verkefnastjórnun kostur sérstaklega Agile/Scrum aðferðarfræði.
  • Góðir samskiptahæfileikar.
  • Æskileg reynsla

           -Python, Django og Linux
          -Java
          -Javascript, jQuery ofl.
          -Oracle-PL/SQL

Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á tölvunarfræði í sínum víðasta skilningi og hefur metnað og frumkvæði til að vinna að þróun á hvers kyns tæknilausnum fyrir landbúnað. Gert er ráð fyrir að starfsstöð viðkomandi verði á Akureyri en aðrar staðsetningar á starfsstöðvum RML kæmu einnig til greina.

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um landið. Við bendum áhugasömum á heimasíðu fyrirtækisins www.rml.is þar sem sótt er um starfið, en þar er einnig hægt að kynna sér starfsemina enn frekar. 

Umsóknarfrestur er til og með 30. mars.
Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóri klk@rml.is og Þorberg Þ. Þorbergsson verkefnastjóri á fjármála og tæknisviði thorberg@rml.is.

Smellið hér til að sækja um starf.
/hh