Erlendu lánin hagstæðari þegar upp er staðið

Ólafur Þór segir að þeim, sem hafi rekið bú sín vel og gjaldfært hækkun lánanna bregði í brún núna að fá leiðréttinguna sem tekjur og þurfa að borga skatt. Misjafnt er hverning menn haga sínum rekstri og skattlagning fer eftir rekstrarformi, þ.e. hvort um er að ræða einstaklingsrekstur, hlutafélög eða sameignarfélög.

Dæmi eru um að bændur hafi ekki gjaldfært hækkunina eða gengismuninn á lánum sínum þegar þau hækkuðu. Nú þurfa þeir að borga tekjuskatt af leiðréttingunni án þess að hafa nýtt sér gjaldfærsluna til skattalækkunar á árum áður. Þeir eiga þó rétt á leiðréttingu aftur í tímann hafi þeir ekki gjaldfært hækkunina.

Staða einstakra búa er ákaflega misjöfn segir Ólafur Þór. "Flestir sem tóku erlend lán eru búnir að fá leiðréttingu. Ég held að staðan sé mun verri hjá þeim sem eru með íslensku verðtryggðu lánin. Þau hafa ekki verið leiðrétt en hafa hækkað mikið. Manni finnst svolítið súrt að horfa upp á það að staðan sé verri hjá þeim sem ekki tóku áhættuna af erlendu lánunum," segir Ólafur Þór.

Mjög mikilvægt er að menn leiti sér ráða um rekstur, fjárhagsstöðu og skattamál sín hjá sérfræðingum. Það getur sparað umtalsverðar fjárhæðir.

Heimild: Morgunblaðið 4. apríl 2013, Guðni Einarsson

/gj