Er búið að örmerkja?

Samkvæmt reglugerð um merkingar búfjár skulu öll hross vera örmerkt og ásetningsfolöld skal örmerkja við hlið móður fyrir 10 mánaða aldur. Nú ætti því að vera búið að merkja flest öll folöld sem fæddust á síðasta ári. Merkingamenn eru hvattir til að skila örmerkjablöðum inn sem allra fyrst eftir merkingu. Hægt er að skila þessum blöðum inn á öllum starfsstöðvum Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins. 

Lítið gagn er í óskráðu örmerki! Of mörg dæmi eru um það að ekki hafi tekist að hafa upp á eigendum að hrossum í óskilum vegna þessa að örmerkið sem í þeim finnst er hvergi skráð. Merkingamanni ber að skilja eftir afrit af örmerkjablaði hjá eiganda eða umsjónamanni. Það er mjög mikilvægt að eigendur gangi eftir því að fá þessi afrit. Margir merkingamenn kvarta yfir því að þeir fái litlar og stundum engar upplýsingar um hrossin sem þeir eru beðnir um að örmerkja. Það gengur ekki, áður en hross er örmerkt verða að liggja fyrir upplýsingar um þau.

Dýralæknum er óheimilt að meðhöndla hross nema þau séu einstaklingsmerkt og sláturhús mega ekki taka hross til slátrunar nema þau séu örmerkt. Höfum þessi mál í lagi, örmerki eru löngu búin að sanna gildi sitt.

Rétt er að benda á að WorldFengur er opinn að hluta til fyrir alla án endurgjalds. Hægt er að leita að hrossum eftir fæðingarnúmeri, nafni, uppruna og örmerki. Það er því auðvelt að fylgjast með hvort upplýsingar um merkingu skila sér ekki fljótlega þar inn. Félagsmenn í hestamannafélögum og Félagi hrossabænda hafa frían aðganga að WF en eitthvað er um að félagsmenn viti ekki um þennan rétt sinn.

Sjá nánar

Starfsstöðvar RML 

Worldfengur

hes/okg