Verð á greiðslumarki hækkar

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu = 10
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup = 57
  • Greiðslumark sem boðið var fram = 711.781 lítrar.
  • Greiðslumark sem óskað var eftir = 2.624.697 lítrar.
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 711.781 lítrar.
  • Kauphlutfall viðskipta er 57,49 %

Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. apríl 2013. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist 320 kr/l.

Myndræn framsetning sýnir uppsafnað kaup- og sölumagn við ákveðið verð. Skurðpunktur línann reynist því aðeins vera niðurstaða á uppboðinu ef ofangreint hlutfall kaup og sölumagns reynist vera jafnt og 1. Sé hlutfallið aftur á móti undir einum þá er skurðpunktur línanna ekki birtingarmynd á jafnvægisverði né jafnvægismagni.
Niðurstaða uppboðsmarkaðarins nú er að allir seljendur með gild tilboð ná að selja boðið greiðslumark þar sem uppsafnað magn frá kaupendum reyndist hærra en sölumagn á jafnvægisverði. Þetta veldur því að sölu- og eftirspurnarlínur skerast ekki en viðskipti verða engu að síður.

Þeir sem lögðu inn kauptilboð og buðu verð = 320 kr/lítra eða hærra fá nú að kaupa sína hlutdeild í því greiðslumarki sem til sölu kemur.

Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri 320,- kr/lítra eða lægra selja nú greiðslumark sitt.

Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. nóvember 2012 sýnir eftirfarandi:

  • að framboð er nú 64,4 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
  • að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 177,3 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði.
  • að verð á greiðslumarki hefur hækkað í krónum talið um 15 kr/lítra.

Heimild: Matvælastofnun, www.mast.is

/gj