Elin Nolsøe Grethardsdóttir komin til starfa

Elin Nolsøe Grethardsdóttir hefur hafið störf hjá RML. Hún mun starfa í faghópi nautgriparæktar og hafa starfsaðstöðu á Búgarði á Akureyri. Til að byrja með mun Elin sinna verkefnum sínum í hlutastarfi frá Færeyjum en í febrúar mun hún koma í fullt starf á starfsstöðina á Akureyri. Best er að hafa samband við Elinu til að byrja með í gegnum netfangið hennar elin@rml.is.

Á starfsstöð RML á Akureyri starfa einnig:

Anna Guðrún Grétarsdóttir - í faghópi skýrsluhalds
Guðmundur Steindórsson - í faghópi nautgriparæktar (í leyfi til áramóta)
Guðmundur Helgi Gunnarsson - í faghópi jarðræktar
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir - Fagstjóri búfjárræktarsviðs
Svanhildur Ósk Ketilsdóttir - Ráðunautur
Vignir Sigurðsson - Fjármálastjóri

/okg