Dagatal RML 2025

Dagatal RML fyrir árið 2025 er komið út og er þessa dagana að berast viðskiptavinum. Þar er að finna upplýsingar um RML og einnig er þar minnt á ýmislegt sem snýr að búrekstri. Dagatalið hefur verið gefið út frá stofnun RML og er þetta því ellefta árið sem viðskiptavinir fá það sent sem þakklætisvott fyrir samskipti og viðskipti á liðnu ári.

Dagatalið er unnið af starfsfólki RML og eru myndirnar sem það prýða jafnframt teknar af starfsfólki. Prentsmiðjan Pixel sér um prentun.

/okg